Demantseyrnalokkar
JE-596-G-20P
Eyrnalokkarnir eru handsmíðaðir úr 14 karata gulli og hvítagulli. Í lokkunum eru tveir 10 punkta demantar samtals 20 punktar í TW VS1 gæðum.
Þegar talað er um stærð (og þar með þyngd) demanta er ýmist notast við karöt eða punkta. 20 punkta demantur er 0,2 karöt, en kerfið er keimlíkt metrakerfinu á þann hátt að 100 punktar eru samtals 1 karat.
Hæð lokkana er um 14 mm.
Hönnuður og smiður er Berglind Snorra.
Netpantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag frá kaupum. Ef pöntuð er áletrun á hlut lengist afgreiðslufresturinn um fimm virka daga. Þú færð tölvupóst frá okkur um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar í verslunum okkar eða þegar við komum henni í hendur flutningsaðila sem sér um að koma pöntuninni á áfangastað.
